Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 30. júní 2018 16:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Dele Alli orðinn klár fyrir Kólumbíuleikinn
Alli er klár
Alli er klár
Mynd: Getty Images
Enski landsliðsmaðurinn Dele Alli er orðinn klár fyrir leikinn gegn Kólumbíu í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins en hann greinir frá því sjálfur.

Miðjumaðurinn meiddist á læri í fyrsta leik Englands á HM gegn Túnis og kom ekki við sögu gegn Panama og Belgíu.

Alli hefur tekið þátt á æfingum Englands í vikunni.

„Ég er klár. Ég var augljóslega pirraður yfir þessum meiðslum en ég hef unnið hart að mér og ég er tilbúinn," sagði Alli.

England lenti í öðru sæti í sínum riðli, á eftir Belgíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner