lau 30. júní 2018 17:16
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Frakklands og Argentínu: Mbappe bestur
Mynd: Getty Images
Frakkar höfðu betur í stórleik gegn Argentínu í 16-liða úrslitum Heimsmeistaramótsins.

Kylian Mbappe var maður leiksins þar sem hann skoraði tvö og fiskaði vítaspyrnu. Paul Pogba var næstbestur á vellinum.

Aðeins tveir menn í liði Argentínu þóttu spila sæmilega, þeir Angel Di Maria og Sergio Aguero sem kom af bekknum í síðari hálfleik.

Marcos Rojo þótti verstur í liði Argentínu og var tekinn útaf í hálfleik fyrir Federico Fazio.

Lionel Messi fann aldrei taktinn í leiknum þar sem Blaise Matuidi og N'Golo Kante höfðu góðar gætur á honum.

Frakkland:
Hugo Lloris - 6
Benjamin Pavard - 7
Raphael Varane - 6
Samuel Umtiti - 6
Lucas Hernandez - 6
Paul Pogba - 8
N'Golo Kante - 7
Blaise Matuidi - 7
Kylian Mbappe - 9 Maður leiksins
Antoine Griezmann - 7
Olivier Giroud - 7
(Tolisso 6, Fekir 6, Thauvin 6)

Argentína:
Franco Armani - 5
Gabriel Mercado - 6
Nicolas Otamendi - 6
Marcos Rojo - 5
Nicolas Tagliafico - 5
Enzo Perez - 6
Javier Mascherano - 5
Ever Banega - 5
Christian Pavon - 6
Lionel Messi - 6
Angel Di Maria - 7
(Fazio 5, Meza 6, Aguero 7)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner