Blaise Matuidi, miðjumaður Frakklands verður í leikbanni í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins vegna tveggja áminninga.
Matuidi var á spjaldi fyrir leikinn gegn Argentínu í 16-liða úrslitum og fékk hann einnig gult spjald í leiknum í dag.
Það þýðir að Frakkinn mun missa af 8-liða úrslitunum.
Matuidi fékk gula spjaldið á 72. mínútu en þá var staðan 4-2 fyrir Frakklandi.
Frakkland mun mæta annað hvort Úrúgvæ eða Portúgal í 8-liða úrslitum en það ræðst í kvöld hvort liðið kemst áfram.
Athugasemdir