Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 30. júní 2018 14:52
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Sjáðu markið: Di Maria jafnaði gegn Frökkum með geggjuðu marki
Angel Di Maria fagnar marki sínu í dag
Angel Di Maria fagnar marki sínu í dag
Mynd: Getty Images
Angel Di Maria jafnaði leikinn gegn Frakklandi í 16-liða úrslitum með geggjuðu marki af löngu færi en markið má sjá hér að neðan.

Það er kominn hálfleikur í leiknum en Frakkland komst yfir með marki frá Antoine Griezmann úr vítaspyrnu.

Kylian Mbappe tók þá á rás frá sínum eigin vallarhelmingi og sprengdi upp vörn Argentínu. Marcos Rojo braut á honum og réttilega dæmd vítaspyrna.

Argentína hefur verið meira með boltann í leiknum en hafa skapað sér fá færi. Frakkland hafa verið hættulegri fram á við.

En þá var komið að Di Maria sem lét vaða af löngu færi og átti Hugo Lloris ekki séns í skotið.

Markið má sjá að neðan en einhverjir hafa talað um það sem mark mótsins.



Athugasemdir
banner
banner