Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 30. júní 2022 16:30
Elvar Geir Magnússon
Tekur Puig og Umtiti ekki með í æfingabúðirnar
Riqui Puig (til hægri) á varamannabekknum.
Riqui Puig (til hægri) á varamannabekknum.
Mynd: Getty Images
Xavi Hernandez, þjálfari Barcelona, tilkynnti þeim Oscar Mingueza, Riqui Puig og Samuel Umtiti að þeir kæmu ekki með í æfingabúðir félagsins fyrir komandi tímabil.

Xavi hefur beðið leikmennina þrjá um að finna út úr framtíð sinni sem allra fyrst.

Clement Lenglet mun ekki fara í æfingabúðirnar en hann færist nær því að vera lánaður til Tottenham. Þá er Luuk de Jong búinn að yfirgefa Börsunga eftir lánsdvöl frá Sevilla.

Varnarmaðurinn Mingueza er á óskalistum nokkurra La Liga félaga og Umtiti er í samræðum við Fiorentina. Staða Puig er flóknari þar sem miðjumaðurinn vill vera áfram hjá Barcelona.

Xavi vinnur að því að móta leikmannahóp sinn en hlutirnir gerast hægt, meðal annars vegna þess að fjárhagsstaða félagsins er viðkvæm.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner