Fimm Íslendingar hafa spilað með skoska liðinu Aberdeen. Á þessu var vakin athygli á Twitter-reikningnum '(Ó)áhugaverðar staðreyndir um íslenska knattspyrnu' í gær.
Breiðablik mætir einmitt skoska liðinu í 3. umferð forkeppni Sambandsdeildar. Fyrri leikur liðanna fer fram á fimmtudag á Íslandi.
Þeir Íslendingar sem spilað hafa með Aberdeen eru þeir Kári Árnason, Þórarinn Brynjar Kristjánsson, Haraldur Ingólfsson og bræðurnir Calum Þór og Baldur Bett.

Kári var á mála hjá félaginu 2011-2012 og svo aftur 2017-18. Hann spilaði alls 54 deildarleiki.
Tóti lék þrjá deildarleiki tímabilið 2004-05, Halli lék sex leiki tímabilið 1996-97 á láni frá ÍA.
Calum lék fimm leiki á árunum 2000-02 og Baldur lék tvo leiki á árunum 1998-2000. Bett-bræður hófu sína ferla hjá Aberdeen.
Þá lék Gunnar Einarsson á sínum tíma fyrir unglinga- og varalið Aberdeen en spilaði ekki fyrir aðalliðið.
Ein stórkostlega óáhugaverð staðreynd.5 Íslendingar hafa spilað með UEFA (1982) og Super cup (1983) meisturum Aberdeen. Kári Árna(56 leikir), Tóti Kristjáns(3 leikir),Haddi Ingólfs(6 leikir),C.Bett(5 leikir), B.Bett(2 leikir. pic.twitter.com/q0gsdHwmT1
— (Ó)áhugaverðar staðreyndir um íslenska knattspyrnu (@OReyndir) June 30, 2021
Athugasemdir