Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
   lau 30. júlí 2022 16:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gústi Gylfa: Hefði viljað hafa þennan leik á öðrum degi
Ágúst Gylfason, þjálfari Stjörnunnar.
Ágúst Gylfason, þjálfari Stjörnunnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Viðbrögðin eru fín. Þetta voru tvö hörkulið að spila," sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Stjörnunnar, eftir 2-2 jafntefli gegn Víkingum í Bestu deildinni.

„Ég vil þakka stuðningsmönnum fyrir að mæta á völlinn á laugardegi um verslunarmannahelgi. Þetta var kraftmikill leikur. Það er neikvætt að við fáum tvö mörk á okkur úr hornspyrnum og það er eitthvað sem við verðum að skoða vel."

Lestu um leikinn: Stjarnan 2 -  2 Víkingur R.

Leikir þessara tveggja liða í sumar hafa báðir verið mjög skemmtilegir, en fyrri leikurinn endaði 4-5 fyrir Stjörnunni.

„Bæði lið spila nútímafótbolta, liðin vilja halda bolta og sækja hratt á andstæðinginn. Það koma fullt af mörkum. Ég hefði viljað hafa þennan leik á öðrum degi, þá hefði kannski verið fullt stúka. Ég vona að fólk hafi horft á þetta í sjónvarpinu, eintóm skemmtun."

Þessi leikur fór fram á laugardeginum um verslunarmannahelgi. Er ekkert vesen að gíra menn upp í fótboltaleik á degi sem þessum þegar flestallir eru í fríi?

„Nei, það er minnsta mál. Við vorum búnir að gera önnur plön en svo var þessi leikur settur á. Við þurftum að spila hann og klára hann," segir Gústi.

Allt viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner