Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 30. ágúst 2021 20:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Birkir Már framlengir hjá Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
hinn 36 ára gamli Birkir Már Sævarsson hefur framlengt samning sinn við Val út tímabilið 2022.

Birkir er uppalinn Valsari en hann skrifaði undir sinn fyrsta samning við félagið 19 ára gamall árið 2003.

Birkir hélt í atvinnumennsku árið 2008 þar sem hann átti farsælan feril með Brann í Noregi og Hammarby í Svíþjóð. Hann kom síðan heim úr mennskunni í Val árið 2018.

„Birkir Már Sævarsson hefur framlengt samning sinn við Val út tímabilið 2022. Birkir Már sem er borinn og barnsfæddur Valsmaður skrifaði undir sinn fyrsta samning við Val árið 2003 þá 19 ára gamall. Hann átti síðan farsælan feril í atvinnumennsku erlendis frá 2008 til ársins 2018 þegar hann sneri aftur í Val og hefur verið einn af lykilmönnum liðsins. Segir í tilkynningu Vals.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner