mán 30. ágúst 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hudson-Odoi til Dortmund á láni?
Callum Hudson-Odoi.
Callum Hudson-Odoi.
Mynd: Getty Images
Þýska úrvalsdeildarfélagið Borussia Dortmund er að vinna í því að fá kantmanninn Callum Hudson-Odoi á láni frá Chelsea.

Sky Sports er búinn að fá upplýsingar um það að leikmaðurinn sé opinn fyrir því að fara til Dortmund þar sem hann vill fá að spila fótbolta sem byrjunarliðsmaður.

Það er óvíst hvort Chelsea sé tilbúið að leyfa honum að fara. Hinn tvítugi Hudson-Odoi hefur verið ónotaður varamaður í fyrstu þremur leikjum tímabilsins hjá Chelsea.

Bayern München, erkifjendur Dortmund, hafa haft mikinn áhuga á Hudson-Odoi síðustu ár en Chelsea hefur hafnað öllum tilraunum Bayern í að reyna að fá leikmanninn.

Félagaskiptaglugginn lokar á morgun og því ekki mikill tími til stefnu.
Athugasemdir
banner
banner
banner