Lionel Messi, einn besti fótboltamaður allra tíma og að margra mati sá besti, lék sinn fyrsta leik fyrir Paris Saint-Germain í gær þegar liðið vann 2-0 útisigur gegn Reims í frönsku deildinni.
Kylian Mbappe, sem Real Madrid er að reyna að fá í sínar raðir, skoraði bæði mörkin.
Kylian Mbappe, sem Real Madrid er að reyna að fá í sínar raðir, skoraði bæði mörkin.
Messi byrjaði á bekknum en kom inn sem varamaður á 66. mínútu fyrir vin sinn og fyrrum liðsfélaga hjá Barcelona, Neymar.
Nú er bara að reyna að venjast því að sjá Messi í nýrri treyju!
PSG er með ótrúlega sóknarlínu en liðið er með fullt hús eftir fjórar umferðir og með sjö mörk í plús í markatölu.
Athugasemdir