Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 30. ágúst 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Eitt af mörkum tímabilsins kom í fyrstu umferð
PSG byrjar á 5-1 sigri.
PSG byrjar á 5-1 sigri.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrsta umferð úrvalsdeildar kvenna í Frakklandi fór fram um liðna helgi.

Meistararnir í PSG fara mjög vel af stað. Þær unnu 5-0 sigur gegn Fleury 91 á heimavelli.

Það er óhætt að segja að eitt af mörkum tímabilsins hafi verið skorað strax í fyrstu umferð þegar annað mark Parísarliðsins kom í leiknum í gær.

Hin þýska Sara Däbritz lét vaða lengst utan af velli og boltinn söng í netinu.

Hægt er að sjá myndband af markinu hér að neðan. Óhætt að mæla með áhorfi!


Athugasemdir
banner
banner
banner