mán 30. ágúst 2021 15:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Níu aðildarfélög til viðbótar kalla eftir aukaþingi hjá KSÍ
Úr leik Magna og Völsungs á dögunum. Forsvarsmenn frá báðum þessum félögum skrifa undir yfirlýsinguna.
Úr leik Magna og Völsungs á dögunum. Forsvarsmenn frá báðum þessum félögum skrifa undir yfirlýsinguna.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fyrr í dag var sagt frá því að ÍTF, hagsmunasamtök félaga í efstu deildum Íslands, vildu fá aukaþing og bráðabirgðastjórn hjá KSÍ eftir fréttir síðustu daga.

Guðni Bergsson lét af störfum sem formaður KSÍ í gær en háværar raddir eru um að það þurfi að hreinsa enn frekar til hjá sambandinu og fleiri að víkja.

Sjá einnig:
„Íslensk knattspyrna og þolendur eiga betra skilið"

Núna hafa níu aðildarfélög KSÍ, utan ÍTF, bæst í flóruna; þau hafa lagt fram formlega ósk til KSÍ um tafarlausa boðun til aukaþings KSÍ.

Fleiri félög íhuga að vera með í þessari vegferð.

Ósk um boðun til aukaþings Knattspyrnusambands Íslands
Í samræmi við 13. grein laga Knattspyrnusambands Íslands óska undirrituð fyrir hönd knattspyrnudeilda sinna eftir því að stjórn sambandsins boði tafarlaust til aukaþings.

Á síðustu dögum hafa farið fram umræður og verið teknar ákvarðanir innan stjórnar sem að augljóst er að þarfnast aðkomu aðildarfélaga sambandsins. Orðspor íslenskrar knattspyrnu er stórlega skaðað og því þarf tafarlaust að boða til þings og móta viðbrögð til framtíðar sem nýtur trausts allra aðildarfélaga og íslensks samfélags.

Neðangreind félög skora auk þess á sitjandi stjórnarmenn að skoða grein 13.5. í lögum KSÍ þar sem segir:

13.5. Á aukaþingi má ekki gera lagabreytingar og ekki kjósa stjórn, nema bráðabirgðastjórn, ef meirihluti kjörinnar aðalstjórnar hefur sagt af sér eða hætt störfum af öðrum orsökum, eða stjórnin að eigin dómi orðið óstarfhæf.

Á aukaþingi gefst sitjandi stjórnarmönnum færi á að endurnýja umboð sitt til starfa eða stíga frá þeim, með heildarhagsmuni íþróttarinnar að leiðarljósi.

Framundan er vinna sem horfa þarf til hagsmuna knattspyrnunnar á Íslandi. Krafa samfélagsins um gagnsæ viðbrögð og vinnuferli sem tekur á augljósum mistökum undanfarinna vikna, mánaða og ára getur einfaldlega ekki beðið. Til að traust ríki um þá vinnu er aðkoma allra aðildarfélaga KSÍ alger nauðsyn.

Virðingarfyllst,
Dagný Steindórsdóttir, gjaldkeri knattspyrnudeildar Einherja
Magnús Þór Jónsson, formaður knattspyrnudeildar ÍR
Gísli Gunnar Oddgeirsson, formaður knattspyrnudeildar Magna
Magnús Björn Ásgrímsson, formaður knattspyrnudeildar Leiknis F.
Ágúst Örlaugur Magnússon, formaður knattspyrnudeildar Hamars
Jónas Halldór Friðriksson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Völsungs
Einar Karl Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Víðis
Brynjar Freyr Garðarsson, formaður knattspyrnudeildar Njarðvíkur
Auðunn Örn Gylfason, formaður KV
Athugasemdir
banner