Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mán 30. ágúst 2021 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Svaraði umræðu um Witsel á samfélagsmiðlum
Axel Witsel.
Axel Witsel.
Mynd: Getty Images
Um liðna helgi fóru af stað sögusagnir um að Aston Villa væri að reyna að kaupa belgíska miðjumanninn Axel Witsel frá Borussia Dortmund fyrir 5 milljónir punda.

Rene Maric, aðstoðarþjálfari Dortmund, sá að það var verið að tala um þessar sögusagnir á samfélagsmiðlum og ákvað að tjá sig um málið - blanda sér í umræðuna.

„Þetta er augljóslega kjaftæði," skrifaði Maric og gefur hann ekki mikið fyrir þessa blaðamennsku.

Hann var svo beðinn um heimildir fyrir þessu svari sínu af einum notenda á Twitter og ákvað að svara því á mjög einfaldan hátt.

Svar hans má sjá hér að neðan. Það er því ekki hægt að gera ráð fyrir því að Witsel sé á förum frá Dortmund áður en glugginn lokar á morgun.


Athugasemdir
banner
banner
banner