Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 30. ágúst 2021 20:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Willian farinn frá Arsenal - Á leið til Corinthians
Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Willian hefur rift samningi sínum við Arsenal og er á leið til Corinthians í heimalandinu.

Hann átti tvö ár eftir af samningnum en hann var með 240 þúsund pund í vikulaun. Hann vildi sjálfur rifta samningnum og hann fær ekki borgað laun út samninginn sem nemur 20.5 milljónum punda.

Það er talið að hann sé á leiðinni til Brasilíu og muni skrifa undir samning við Corinthians á morgun og taka á sig 70% launalækkun.

Willian kom til Arsenal fyrir síðustu leiktíð og skoraði 1 mark og var með 5 stoðsendingar í 25 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner