Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 30. ágúst 2022 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
3. deild: Dalvík/Reynir í lykilstöðu fyrir lokasprettinn
Borja Lopez
Borja Lopez
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Einn leikur fór fram í 3. deildinni í kvöld þar sem Kormákur/Hvöt fékk Dalvík/Reyni í heimsókn á Hvammstanga.


Staðan var markalaus í hálfleik en Borja Lopez Laguna kom gestunum yfir eftir klukkutíma leik.

Halldór Jóhannesson bætti öðru markinu við rúmum tíu mínútum síðar og Borja fylgdi því fljótlega eftir með þriðja marki liðsins og öðru marki sínu í leiknum.

Þannig enduðu leikar og eru Dalvíkingar aftur komnir á toppinn. Dalvík/Reynir er með tveggja stiga forystu á Sindra þegar þrjár umferðir eru eftir.

Kormákur/Hvöt er fjórum stigum frá fallsæti en á leik til góða á liðin fyrir neðan sig.


Athugasemdir
banner
banner