Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 30. ágúst 2022 07:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ampadu að ganga til liðs við Mikael Egil í Spezia
Ethan Ampadu í leik með Venezia gegn Sampdoria á síðustu leiktíð.
Ethan Ampadu í leik með Venezia gegn Sampdoria á síðustu leiktíð.
Mynd: EPA

Chelsea er að lána Ethan Ampadu aftur í Serie A eftir að hafa spilað eitt tímabil með nýliðum Venezia sem féllu aftur niður í B-deildina.


Hjá Venezia var Ampadu í leikmannahópi með Bjarka Steini Bjarkasyni og Arnóri Sigurðssyni en núna gengur hann í raðir Spezia þar sem hann verður með Mikael Agli Ellertssyni í hóp.

Ampadu er 21 árs miðvörður sem getur einnig spilað aftarlega á miðjunni og gengur til liðs við afar áhugavert lið Spezia sem er að spila þriðja tímabilið sitt í röð í efstu deild.

Spezia er með fjögur stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar á nýju tímabili og gæti Ampadu reynst mikill liðsstyrkur.

Ampadu á tvö ár eftir af samningi sínum við Chelsea og á 36 landsleiki að baki fyrir Wales þrátt fyrir ungan aldur.


Athugasemdir
banner
banner