banner
   þri 30. ágúst 2022 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Antony búinn í læknisskoðun
Mynd: Getty Images

Antony er búinn í læknisskoðun hjá Manchester United og verður kynntur sem nýr leikmaður félagsins í dag eða á morgun.


Man Utd er talið borga 100 milljónir evra, eða 85 milljónir punda, fyrir kantmanninn. Það gerir hann að næstdýrasta leikmanni í sögu félagsins eftir Paul Pogba.

Rauðu djöflarnir hafa reynt að kaupa Antony í allt sumar en Ajax hafnaði hverju tilboðinu fætur öðru þar til í blálokin. Antony gerði allt í sínu valdi til að setja pressu á Ajax og var byrjaður að skrópa á æfingum og ekki gefa kost á sér í leiki til að fá sínu fram. Það hafðist að lokum og draumurinn er að rætast.

Antony er ekki síðasti leikmaðurinn sem gengur í raðir Man Utd í sumar því Martin Dubravka er einnig á leiðinni frá Newcastle. Markvörðurinn kemur á eins árs lánssamningi með 5 milljón punda kaupmöguleika.


Athugasemdir
banner
banner
banner