Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 30. ágúst 2022 20:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Southampton hafði betur gegn Chelsea - Fulham vann
Adam Armstrong
Adam Armstrong
Mynd: EPA
Anthony Gordon skoraði fyrir Everton
Anthony Gordon skoraði fyrir Everton
Mynd: Getty Images

Southampton fékk Chelsea í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Með sigri hefði Southampton getað jafnað Chelsea að stigum.


Chelsea byrjaði betur en Raheem Sterling kom liðinu yfir eftir rúmlega tuttugu mínútna leik þegar hann kom boltanum í netið af miklu harðfylgi.

Hinn 18 ára gamli Romeo Lavia var ekki lengi að jafna metin en það gerði hann með frábæru marki eftir 28. mínútna leik.

Southampton fór með forystu inn í hálfleikinn því Adam Armstrong skoraði í uppbótartíma og kom liðinu í 2-1.

Southampton voru hreinlega líklegri til að bæta við en Chelsea að jafna en allt kom fyrir ekki, 2-1 urðu lokatölur leiksins.

Crystal Palace og Brentford skyldu jöfn en WIlfried Zaha kom Palace yfir eftir tæplega klukkutíma leik. Yoane Wissa jafnaði metin þegar skammt var til leiksloka.

Fulham vann góðan 2-1 sigur á Brighton. Leeds og Everton skyldu jöfn 1-1.

Fulham 2 - 1 Brighton
1-0 Aleksandar Mitrovic ('48 )
1-1 Lewis Dunk ('55 , sjálfsmark)
1-2 Alexis MacAllister ('60 , víti)

Leeds 1 - 1 Everton
0-1 Anthony Gordon ('17 )
1-1 Luis Sinisterra ('56 )

Crystal Palace 1 - 1 Brentford
1-0 Wilfred Zaha ('59 )
1-1 Yoane Wissa ('88 )

Southampton 2 - 1 Chelsea
0-1 Raheem Sterling ('23 )
1-1 Romeo Lavia ('28 )
2-1 Adam Armstrong ('45 )


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner