Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 30. ágúst 2022 15:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Er til myndband af Pogba að leggja bölvun á Mbappe?
Paul Pogba.
Paul Pogba.
Mynd: EPA
Það hefur ekki verið mikið gott að frétta af franska landsliðsmanninum Paul Pogba síðustu daga.

Franski miðillinn L'Equipe sagði frá ótrúlegu máli um síðustu helgi þar sem kom fram að Mathias Pogba hefði á þessu ári ítrekað reynt að kúga fé úr bróður sínum.

Þeir sem reyndu að kúga fé úr Pogba hafa reynt að koma höggi á hann með því að segja að hann hafi farið til galdralæknis til þess að setja bölvun á liðsfélaga sinn í landsliðinu, Kylian Mbappe, eitthvað sem Pogba þverneitar fyrir.

Að sögn L'Equipe þá er talað um það innan franska landsliðshópsins að það sé til myndband af því þegar Pogba hafi lagt bölvun á Mbappe.

Ekki er vitað af hverju Pogba myndi leggja bölvun á Mbappe, þeir eru nú liðsfélagar í franska landsliðinu. Ekki er vitað hvernig þessi bölvun myndi ganga fyrir sig og hvort það sé í raun hægt að leggja bölvun á annan einstakling yfir höfuð. En ef þetta er satt, þá er Mbappe eflaust ekkert sérlega sáttur.

Sjá einnig:
Drama hjá Pogba-fjölskyldunni - Reyndi að kúga bróður sinn um 13 milljónir evra
Athugasemdir
banner
banner
banner