Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 30. ágúst 2022 18:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lampard varar Gordon við - „Hann myndi sjá nýja hlið á mér"
Anthony Gordon
Anthony Gordon
Mynd: EPA

Anthony Gordon leikmaður Everton er í byrjunarliði liðsins sem mætir Leeds í úrvalsdeildinni í kvöld.


Hann hefur verið orðaður við Chelsea að undanförnu en margir hafa furðað sig á verðmiðanum en Everton er talið hafa hafnað 60 milljón punda tilboði í leikmanninn.

Frank Lampard stjóri Everton hefur varað Gordon við því að neita að spila fyrir félagið.

„Ef hann myndi reyna það þá myndi hann sjá nýja hlið á mér. Það er ekki spurning og ég held að hann viti það. Ég veit að hann er ekki þannig gerður en á sama tíma er hann ekki vélmenni."

„Öll þessi athygli er erfið og ég skil það, ég var einu sinni ungur og metnaðarfullur," sagði Lampard.


Athugasemdir
banner
banner
banner