Sky Sports greinir frá því að Leicester City sé í viðræðum við Schalke um félagsskipti Amine Harit.
Leicester vill fá þennan landsliðsmann Marokkó lánaðan út tímabilið en Schalke vill selja hann því hann á bara tvö ár eftir af samningnum við félagið.
Harit er 25 ára og spilaði 34 leiki á láni hjá Marseille á síðustu leiktíð.
Brendan Rodgers vill breikka hópinn hjá Leicester eftir slaka byrjun á úrvalsdeildartímabilinu. Félagið er aðeins búið að krækja í Alex Smithies í sumar, hann er varamarkvörður sem kom á frjálsri sölu.
Harit er sóknarsinnaður miðjumaður sem getur einnig leikið úti á köntunum.
Athugasemdir