Harry Winks mun fljúga til Ítalíu á næstu klukkutímum til að gangast undir læknisskoðun og skrifa undir lánssamning við Sampdoria.
Fabrizio Romano greinir frá þessu en hann verður lánaður frá Tottenham út tímabilið.
Fabrizio Romano greinir frá þessu en hann verður lánaður frá Tottenham út tímabilið.
Winks er 26 ára varnarsinnaður miðjumaður með 10 landsleiki að baki fyrir England og 203 leiki fyrir Tottenham Hotspur.
Hann er alinn upp hjá Tottenham og er þetta í fyrsta sinn á ferlinum sem hann yfirgefur félagið á lánssamningi.
Winks spilaði 30 leiki á síðustu leiktíð en aðeins 19 í ensku úrvalsdeildinni. Leiktíðina þar áður spilaði hann einnig 30 leiki en fyrir það hafði hann verið byrjunarliðsmaður.
Harry Winks, flying to Italy in the next hours in order to undergo medical tests and sign the contract as new Sampdoria player on loan from Tottenham. ⚪️🛩 #THFC
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 30, 2022
Deal agreed on season-long loan.
Athugasemdir