Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 30. september 2020 14:37
Magnús Már Einarsson
Byrjar Rúnar Alex gegn Liverpool á morgun?
Rúnar Alex á æfingu hjá Arsenal.
Rúnar Alex á æfingu hjá Arsenal.
Mynd: Getty Images
Rúnar Alex Rúnarsson gæti spilað sinn fyrsta leik með Arsenal þegar liðið heimsækir Liverpool í enska deildabikarnum á Anfield annað kvöld.

Rúnar Alex kom til Arsenal frá Dijon í síðustu viku og fór beint á bekkinn gegn Leicester í enska deildabikarnum tveimur dögum síðar.

Hann var einnig á bekknum í leiknum gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á Anfield í fyrrakvöld.

Rúnar Alex hefur nú náð að æfa með Arsenal og gæti fengið tækifærið annað kvöld þar sem Mikel Arteta, stjóri Arsenal, mun væntanlega breyta byrjunarliðinu talsvert frá því á mánudag.

Stuðningsmanna síðan Just Arsenal segir að Rúnar Alex verði að spila á morgun til að veita Bernd Leno samkeppni og sýna Þjóðverjanum að hann sé ekki eini markvörðurinn hjá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner