Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 30. september 2020 17:00
Magnús Már Einarsson
Mourinho bjartsýnn á að fá framherja
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, er bjartsýnn á að ná að krækja í nýjan framherja áður en félagaskiptaglugginn lokar á mánudaginn.

Harry Kane er eini framherjinn í hópnum hjá Tottenham í dag en Heung-Min Son og Gareth Bale geta einnig spilað þar.

Joshua King (Bournemouth), Arkadiusz Milik (Napoli) og Andrea Belotti (Torino) hafa allir verið orðaðir við Tottenham að undanförnu.

„Ég er bjartsýnn og ég við erum að reyna allt sem við getum," sagði Mourinho.

„Þetta er eins og fótboltaleikur. Þú vinnur eða vinnur ekki en þú gefur allt sem þú getur í þetta og reynir allt. Félagaskiptamarkaðurinn er eins."
Athugasemdir
banner
banner