Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. september 2021 11:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bolt þakkaði Ferguson fyrir endurkomu Ronaldo
Ronaldo fagnaði með því að fara úr treyjunni
Ronaldo fagnaði með því að fara úr treyjunni
Mynd: EPA
Það sást á sjónvarpsmyndavélum í lok leiks Manchester United og Villarreal í gær að sneggsti maður sögunnar, Usain Bolt, ræddi við Sir Alex Ferguson í stúkunni á Old Trafford.

Cristiano Ronaldo skoraði sigurmark United í uppbótartíma og tryggði endurkomusigur gegn spænska liðinu.

Bolt er búinn að segja frá því hvað fór á milli hans og Sir Alex. Bolt þakkaði Sir Alex fyrir enduromu Ronaldo til Manchester United.

Eins og frægt er orðið gekk Ronaldo í raðir United í sumar eftir tólf ár í burtu.

„Ég er mjög glaður að Ronaldo er kominn aftur. Ég sá Alex á vellinum og ég þakkaði honum fyrir að koma með Ronaldo til baka," sagði Bolt.


Athugasemdir
banner
banner
banner