Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. september 2021 20:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bruno um mark Telles: Sagði honum hvar hann ætti að vera
Mynd: EPA
Manchester United lagði Villarreal í Meistaradeildinni í gærkvöldi.

Leiknum lauk með 2-1 sigri United en Villarreal komst yfir með marki frá Paco Alcacer í upphafi síðari hálfleiks. Alex Telles jafnaði með stórkostlegu marki eftir hornspyrnu frá Bruno eftir klukkutíma leik.

Það var síðan Cristiano Ronaldo sem tryggði United sigurinn á síðustu sekúndum leiksins.

Bruno var til viðtals hjá Man Utd TV þar sem hann sagði frá samskiptum hans og Telles í aðdraganda marksins.

„Alex (Telles) kom til mín og ætlaði að labba yfir boltann og fá sendingu inn í teiginn ef það væri möguleiki, ég sagði við hann að vera fyrir utan teiginn og ég muni senda á hann og hann muni taka skot í fyrsta eða taka á móti honum," sagði Bruno.

„Þetta eru gæðin hans, hefur ekkert með mig að gera, jæja, sendingin var góð og fór beint til hans. en hann átti frábært skot og ótrúlegt mark."
Athugasemdir
banner
banner
banner