Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 30. september 2021 15:33
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Leicester gegn Legia: Daka fremstur
Patson Daka er í liðinu
Patson Daka er í liðinu
Mynd: Getty Images
Leicester City mætir Legia Varsjá frá Póllandi í C-riðli Evrópudeildarinnar klukkan 16:45. Patson Daka er fremstur hjá Leicester.

Daka hefur ekki enn tekist að skora fyrir Leicester frá því hann kom frá RB Salzburg í sumar en hann byrjar annan Evrópudeildarleikinn í röð fyrir félagið.

Youri Tielemans er á sínum stað á miðjunni. Kiernan Dewsbury-Hall byrjar þá í fyrsta sinn í Evrópudeildinni en hann hefur ekki enn leikið úrvalsdeildarleik á þessari leiktíð.

Byrjunarlið Leicester: Schmeichel; Thomas, Amartey, Soyuncu, Vestergaard; Soumaré, Tielemans; Castagne, Dewsbury, Ayoze Pérez; Daka.
Athugasemdir
banner
banner