Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. september 2021 19:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Leicester greinilega með hugann við leik helgarinnar
Mynd: EPA
Leicester tapaði gegn Legia í Evrópudeildinni í kvöld með einu marki gegn engu.

Liðið er aðeins með eitt stig eftir tvær umferðir en Napoli og Spartak Moskva hófu leik núna kl 19. Með sigri fer Napoli í 4 stig í 2. sæti.

Steve Claridge blaðamaður hjá Sky Sports skildi ekkert í liðsvali Rodgers og sagði að leikmennirnir væru ekki með hlutverkin sín á hreinu inná vellinum.

„Leicester eru mjög vonsviknir. Þeir voru mjög slakir. Þeir sköpuðu sín eigin vandræði. Þeir áttuðu sig ekki á sínum hlutverkum og höfðu ekki trú á því að þeir gætu unnið leikinn. Þeir höfðu greinilega hugann við Crystal Palace og ég skil það ekki miðað við stærð hópsins. Rodgers valdi ranga leikmenn og uppleggið var rangt."
Athugasemdir
banner
banner
banner