Það er kominn hálfleikur í leikjum kvöldsins í Evrópu- og Sambandsdeildinni.
Midtjylland er marki yfir gegn Braga en markið kom úr vítaspyrnu á 19. mínútu.
Braga fékk vítaspyrnu á 35. mínútu en Elías Rafn Ólafsson sem var valinn í A-landsliðshópinn í dag gerði sér lítið fyrir og varði spyrnuna.
Declan Rice skoraði eina mark fyrri hálfleiksins fyrir West Ham gegn Rapid Wien. Tottenham byrjaði af krafti gegn Mura í Sambandsdeildinni en Dele Alli kom liðinu yfir með marki úr vítaspyrnu á þriðju mínútu og Lo Celso bætti öðru marki við á þeirri áttundu. 2-0 í hálfleik.
Athugasemdir