Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 30. september 2021 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mourinho hrósaði Smalling eftir sigur Roma
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho var ánægður með Chris Smalling eftir 3-0 sigur Roma gegn Zorya frá Úkraínu í Sambandsdeildinni í dag.

Stephane El Shaarawy kom Roma yfir snemma leiks en Smalling bætti öðru markinu við í síðari hálfleik og stuttu síðar skoraði Tammy Abraham þriðja markið.

Smalling er að jafna sig á meiðslum en hann hefur aðeins spilað einn heilan leik á þessu tímabili af fjórum fyrir leikinn í dag.

„Í fjarveru Mancini var Smalling til staðar. Hann spilaði vel, með góð samskipti inná vellinum og skoraði sem er alltaf góður bónus," sagði Mourinho eftir leikinn.
Athugasemdir
banner
banner