Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. september 2021 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Rice: Vildi að ég gæti skorað í hverri viku
Mynd: Getty Images
West Ham vann Rapid Vín á heimavelli sínum, London Stadium, í Evrópudeildinni í kvöld með tveimur mörkum gegn engu.

Declan Rice skoraði fyrra markið eftir hálftíma leik og Said Benrahma skoraði seinna markið í uppbótartíma.

Rice lék við hlið Mark Noble á miðjunni í kvöld, það er 12 ára aldursmunur á þeim félögum en Rice sagði í viðtali eftir leikinn að hann hafi ætlað að sanna sig fyrir Noble.

„Þegar ég vissi að ég myndi spila með Noble sagði ég við hann að ég ætlaði að skora. Það er góð tilfinning að skora, ég vildi að það myndi gerast í hverri viku," sagði Rice.
Athugasemdir
banner
banner