Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 30. október 2019 14:00
Magnús Már Einarsson
120 milljónir frá UEFA og KSÍ til barna- og unglingastarfs
Mynd: Merki
Tekjurnar frá UEFA koma úr Meistaradeildinni.
Tekjurnar frá UEFA koma úr Meistaradeildinni.
Mynd: Getty Images
UEFA hefur ákveðið, líkt og áður, að hluti af þeim tekjum sem sambandið hafði af Meistaradeild UEFA (Champions League) 201/2019 skuli renna til félaga í öllum aðildarlöndum UEFA til eflingar knattspyrnu barna- og unglinga.

Uppgjör vegna Meistaradeildarinnar sem lauk vorið 2018 hefur nú farið fram og fá íslensk félög um 60 milljónir króna í sinn hlut til barna- og unglingastarfs. Samkvæmt ákvörðun UEFA skulu öll framlög vegna Meistaradeildar UEFA til barna – og unglingastarfs renna til félaga í efstu deild karla. Framlag UEFA skiptist því á milli félaga í Pepsi Max deild karla.

Stjórn KSÍ hefur samþykkt að leggja til um 60 milljónir króna til viðbótar til barna-og unglingastarfs sem skiptist á milli aðildarfélaga í öðrum deildum og utan deilda. Samþykkt stjórnar KSÍ byggir á samráði við aðildarfélögin og almennri sátt um skiptingu fjármunanna. Greiðslan til félaganna skal renna óskipt til eflingar knattspyrnu barna og unglinga frá yngstu iðkendum til og með 2. aldursflokks karla og kvenna. Samtals er því framlag til barna- og unglingastarfs fyrir árið 2019 áætlað um 120 milljónir króna.

UEFA setur eftirfarandi skilyrði fyrir greiðslu sinni til félaga í Pepsi Max deild karla:

1. Greiðslan fer í gegnum viðkomandi knattspyrnusamband.
2. Aðeins félög sem leika í efstu deild og uppfylla lágmarks kröfur leyfiskerfis viðkomandi knattspyrnusambands varðandi barna- og unglingastarf geta fengið greiðslu.
3. Fjárhæðin skiptist á milli félaganna samkvæmt ákvörðun stjórnar viðkomandi sambands.
4. Félög sem tóku þátt í Meistaradeild UEFA 2018/2019 skulu ekki fá hlutdeild í þessari greiðslu.

Í samræmi við ofangreind skilyrði ákvað stjórn KSÍ að framlag UEFA rynni til þeirra félaga sem léku í Pepsi Max deild karla árið 2019 en í þeirri deild hefur KSÍ innleitt leyfiskerfi (m.a. kröfur um samþykkta áætlun um uppeldisstarf).
---
Samþykkt stjórnar KSÍ um úthlutun fjármagns UEFA og KSÍ til barna- og unglingastarfs 2019:

1. Framlag UEFA til aðildarfélaga til eflingar knattspyrnu barna- og unglinga rennur til þeirra félaga sem léku í Pepsi Max deild karla árið 2019. Félög úr Pepsi Max deild karla fá kr. 5.080.702 hvert. Úthlutun er háð því að félög haldi úti starfsemi í yngri flokkum og hafi samþykkta áætlun um uppeldisstarf skv. leyfisreglugerð KSÍ. Framlag UEFA rennur einungis til félaga í Pepsi-deild karla skv. ákvörðun UEFA.
2. Framlag KSÍ til eflingar knattspyrnu barna og unglinga að upphæð um 57 milljónum króna rennur til félaga í 1. deild, 2. deild, 3. deild, 4. deild og aðildarfélaga KSÍ utan deilda 2019. Hvert félag í 1. deild fær kr. 2.300.000, félag í 2. deild fær kr. 1.450.000 og önnur félög og félög utan deildarkeppni kr. 950.000. Úthlutun er háð því að félög haldi úti starfsemi í yngri flokkum beggja kynja og skulu félög sem eru utan deildarkeppni (eða eru ekki með starfsemi hjá báðum kynjum) framvegis sækja um styrk til barna- og unglingastarfs og sýna fram á starfsemi sína og skal það gert fyrir 31. desember 2019.
3. Greiðslan til félaganna skal renna óskipt til eflingar knattspyrnu barna og unglinga frá yngstu iðkendum til og með 2. aldursflokks karla og kvenna.
4. Dæmi um kostnaðarliði í þessu starfi eru laun þjálfara, ferðakostnaður vegna þátttöku í keppni, aðstöðuleiga, kaup á tækjum og áhöldum.
5. Á fundi sínum þann 11. október 2019 samþykkti stjórn að áskilja sér þann rétt til að kalla eftir staðfestingum frá aðildarfélögum sínum um ráðstöfun styrksins.

Rétt er að taka fram að þegar um samstarfsfélög er að ræða þá hljóta þau félög er að því samstarfi standa styrk ef þau sinna barna- og unglingastarfi.

Eftirfarandi tafla sýnir greiðslur í milljónum króna frá UEFA vegna Meistaradeildarinnar 2018/2019 og frá KSÍ til barna- og unglingastarfs aðildarfélaga KSÍ. Styrkurinn kemur til greiðslu eigi síðar en 1. desember 2019 og verður færður á viðskiptareikning aðildarfélaga KSÍ.

Pepsi Max deild karla (framlag UEFA)*
Breiðablik 5.080.702
FH 5.080.702
Fylkir 5.080.702
Grindavík 5.080.702
HK 5.080.702
ÍA 5.080.702
ÍBV 5.080.702
KA 5.080.702
KR 5.080.702
Stjarnan 5.080.702
Valur 5.080.702
Víkingur R 5.080.702
*með fyrirvara um gengi þegar greiðsla berst frá UEFA

Pepsi Max deild kvenna og Inkasso-deild karla og kvenna
Afturelding 2.300.000
Fram 2.300.000
Fjölnir 2.300.000
Grótta 2.300.000
Haukar 2.300.000
ÍR 2.300.000
Leiknir R 2.300.000
Keflavík 2.300.000
Magni 2.300.000
Njarðvík 2.300.000
Selfoss 2.300.000
Tindastóll 2.300.000
Víkingur Ó 2.300.000
Þór 2.300.000
Þróttur R 2.300.000

2.deild karla
Dalvík (Dalvík/Reynir) 1.450.000
Leiknir F 1.450.000
Vestri 1.450.000
Víðir 1.450.000
Völsungur 1.450.000
Þróttur V 1.450.000

Félög í 3. og 4. deild karla og 2. deild kvenna
Álftanes 950.000
Einherji 950.000
Hamar 950.000
Höttur (Höttur/Huginn) 950.000
KF 950.000
KFR 950.000
Reynir S 950.000
Sindri 950.000
Skallagrímur 950.000
Snæfell 950.000
Ægir 950.000

Sameiginleg lið í meistaraflokki með barna og unglingastarf
Austri 600.000
Valur Rfj 600.000
Þróttur N 600.000
Hvöt 600.000
Kormákur 600.000
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner