Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 30. október 2019 13:00
Magnús Már Einarsson
Alvaro Montejo áfram hjá Þór
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Spænski framherjinn Alvaro Montejo Calleja hefur gert nýjan eins árs samning með Þór og mun hann spila áfram með liðinu í Inkasso-deildinni næsta sumar.

Alvaro hefur spilað með Þór undanfarin tvö tímabil en áður lék hann með ÍBV, Fylki og Huginn.

Hinn 29 ára gamli Alvaro skoraði tíu mörk í átján leikjum með Þór í Inkasso-deildinni í sumar en meiðsli settu strik í reikninginn hjá honum um mitt sumar.

Í fyrra skoraði Alvaro sextán mörk í 21 leik með Þórsurum í Inkasso-deildinni.

Þórsarar enduðu í 6. sæti í Inkasso-deildinni í sumar en þjálfaraskipti urðu hjá liðinu á dögunum þegar Páll Viðar Gíslason tók við af Gregg Ryder.

Athugasemdir
banner
banner
banner