Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 30. október 2019 09:59
Elvar Geir Magnússon
Grímuklæddir ræningjar ógnuðu Marchisio og eiginkonu hans
Claudio Marchisio.
Claudio Marchisio.
Mynd: BBC
Ræningjar brutust inn á heimili Claudio Marchisio, fyrrum leikmanns Juventus, og ógnuðu honum og eiginkonu hans.

Helstu verðmæti heimilisins voru tekin en ræningjarnir voru fjórir og með grímur. Þeir voru með skammbyssur og skrúfjárn til að vera vissir um að komast inn í öryggishólf.

Þeir komust burtu með skartgripi, reiðufé, úr og fleiri verðmæti.

Lögreglan er að rannsaka málið og skoða öryggismyndavélar á svæðinu.

Marchisio er 33 ára og flutti nýlega aftur til Tórínó, eftir að hafa yfirgefið Zenit í Pétursborg í sumar og lagt skóna á hilluna.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner