Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 30. október 2019 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Liðið hans Maradona vann stórsigur - Hann vill þjálfa andstæðingana
Diego Maradona
Diego Maradona
Mynd: EPA
Diego Maradona, þjálfari Gimnasia í argentínsku úrvalsdeildinni, fékk frábærar móttökur er hann mætti Newell's Old Boys í deildinni í gær.

Maradona tók við Gimnasia í byrjun september en mikið hefur gengið á síðan hann tók við.

Hann sendi sjö leikmenn í varaliðið fyrir slaka spilamennsku í byrjun október en sú taktík hefur virkað. Liðið náði í góðan 4-0 sigur gegn Newell's Old Boys í gær.

Maradona kom til Old Boys frá Sevilla árið 1993 og lék þar 5 leiki áður en hann fór til Boca Juniors. Stuðningsmenn Old Boys muna vel eftir Maradona og fékk hann höfðingjalegar móttökur er liðið mætti Gimnasia í gær.

„Hjarta mitt er brotið því ég veit að ég mun koma aftur hingað, því hjartað segir mér að ég eigi eftir að snúa aftur. Ég vil þjálfa Newell's Old Boys," sagði Maradona eftir leikinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner