Þýska liðið Wolfsburg er komið í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 1-0 sigur á Twente en samanlagt vann þýska liðið 7-0.
Wolfsburg vann heimaleikinn 6-0 og voru því nokkrir lykilleikmenn hvíldir í kvöld.
Sara Björk Gunnarsdóttir byrjaði á bekknum en kom inná í hálfleik fyrir Pernille Harder.
Anna Blaesse skoraði eina mark leiksins á 16. mínútu.
Wolfsburg hefur verið áskrifandi að sæti í úrslitum Meistaradeildarinnar ásamt franska liðinu Lyon sem vann Fortuna Hjorring 7-0 í kvöld.
Athugasemdir