Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 30. október 2019 11:00
Elvar Geir Magnússon
Sagt að Mourinho girnist stjórastól Arsenal
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
Enskir fjölmiðlar segja að Jose Mourinho vilji snúa aftur í ensku úrvalsdeildina og sé að horfa til stjórastólsins hjá Arsenal.

Mourinho hefur verið að starfa sem sparkspekingur í sjónvarpi víða um heim síðan hann var rekinn frá Manchester United 2018.

Vangaveltur hafa verið í gangi um hvort Mourinho gæti farið til Arsenal eða Tottenham en það er pressa á Unai Emery og Mauricio Pochettino, stjórum þessara félaga.

Ekki er þó talið að þeir séu á barmi brottrekstrar en The Sun segir að Mourinho sé tilbúinn að sýna þolinmæði í bið eftir rétta starfinu.

Í síðustu viku var Mourinho orðaður við þýsku deildina.
Athugasemdir
banner
banner
banner