Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 30. október 2019 13:30
Magnús Már Einarsson
Steve Stone sakaður um að hafa lagt leikmenn í einelti
Steve Stone.
Steve Stone.
Mynd: Getty Images
Steve Stone, þjálfari U23 árs liðs Burnley, er komið í tímabundið leyfi meðan félagið rannsakar meint einelti af hans hálfu.

Hinn 48 ára gamli Stone er sakaður um að hafa lagt leikmenn í liði sínu í einelti.

Burnley hefur ekki viljað tjá sig um málið en segir að félagið sé að rannsaka það.

Stone var áður þjálfari hjá Newcastle en hann tók við U23 ára liði Burnley í nóvember síðastliðnum.

Stone átti langan feril sem leikmaður en hann spilaði meðal annars níu landsleiki fyrir Englands hönd.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner