Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 30. október 2019 12:00
Magnús Már Einarsson
Valverde: Á ekki fleiri orð til að lýsa Messi
Mynd: Getty Images
Ernesto Valverde, þjálfari Barcelona, segist ekki eiga fleiri orð til að lýsa Lionel Messi eftir frammistöðu Argentínumannsins í 5-1 sigri á Real Valladolid í gær.

Messi skoraði tvö mörk í leiknum og átti tvær stoðsendingar en hann skoraði meðal annars 50. mark sitt á ferlinum úr auakspyrnu.

„Hvað meira get ég sagt um hann? Ég á ekki til fleiri orð," sagði Valverde eftir leik.

„Við vitum alltaf að hann mun standa sig, sama hvaða leikur það er. Það er ekki hægt að bera hæfileika hans saman við nokkurn annan."

„Raunveruleikinn er sá að í hvert skipti sem hann snertir boltann þá gerist eitthvað sérstakt. Ég veit ekki hvað á að segja."

Athugasemdir
banner
banner
banner