Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 30. október 2019 20:13
Brynjar Ingi Erluson
Var Torreira rangstæður í jöfnunarmarki Arsenal?
Lucas Torreira skoraði jöfnunarmark Arsenal
Lucas Torreira skoraði jöfnunarmark Arsenal
Mynd: Getty Images
Lucas Torreira, leikmaður Arsenal, jafnaði metin fyrir liðið gegn Liverpool í deildabikarnum en mikil umræða er um markið á Twitter.

Shkodran Mustafi skoraði í eigið net snemma leiks áður en Torreira jafnaði.

Caoimhin Kelleher varði skot frá Bukayo Saka úr teignum en Torreira var fyrstur að átta sig og skoraði örugglega.

Torreira leit út fyrir að vera rangstæður í markinu en það má sjá hér fyrir neðan. VAR hefur fengið mikla gagnrýni í ensku úrvalsdeildinni en það er hins vegar ekki í deildabikarnum.


Athugasemdir
banner
banner
banner