Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 30. október 2019 15:00
Magnús Már Einarsson
Xhaka skiptir um mynd á Instagram - Arsenal út og Sviss inn
Mynd: Getty Images
Granit Xhaka, fyrirliði Arsenal, hefur verið mikið í umræðunni eftir leik liðsins gegn Crystal Palace um síðustu helgi. Xhaka brást reiður við þegar baulað var á hann þegar hann var tekinn af velli um helgina og kallaði 'fokk off' til stúkunnar.

Margir stuðningsmenn Arsenal hafa kallað eftir því að hann verði sviptur fyrirliðabandinu en Unai Emery sagði á fréttamannafundi í gær að ekki sé búið að taka ákvörðun um það.

Xhaka hefur nú vakið athygli fyrir að skipta um forsíðumynd á Instagram. Xhaka var áður með mynd þar sem hann er með fyrirliðabandið í leik með Arsenal en nú hefur hann skipt um mynd og forsíðumyndin í dag er mynd af honum með fyrirliðaband í leik með Sviss.

Arsenal heimsækir Liverpool í enska deildabikarnum í kvöld en Xhaka er ekki í leikmannahópnum þar frekar en Calum Chambers, David Luiz og Pierre-Emerick Aubameyang sem eru allir hvíldir.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner