Evrópu-Innkastið - 11. þáttur tímabilsins
Það er komið að Evrópu-Innkastinu. Daníel Geir Moritz er fjarri góðu gamni þessa vikuna en Elvar Geir fékk Magnús Má og Gunnleif Gunnleifsson til að fara yfir enska boltann.
Gunnleifur er stuðningsmaður Manchester City og fær toppliðið vænan sess í þætti dagsins. Þá myndaðist skemmtileg umræða um endurkomu Sam Allardyce.
Gunnleifur er stuðningsmaður Manchester City og fær toppliðið vænan sess í þætti dagsins. Þá myndaðist skemmtileg umræða um endurkomu Sam Allardyce.
Meðal efnis: HM-drátturinn, flautumark Sterling, áhrif Guardiola, á eitthvað lið séns í City?, endurfæddur Ashley Young á leið til Rússlands, Höskuldur Eiríksson bíður eftir því að Young leggi skóna á hilluna, Mourinho mætir með rútuna á Emirates, besti markvörður heims, fígúran Sammi sopi, Rooney og Gylfi, Moyes í vandræðum.
Sjá einnig:
Hlustaðu á Innkastið gegnum Podcast forrit
Hlustaðu á eldri þætti af Innkastinu
Athugasemdir