Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 30. nóvember 2022 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pulisic á Snapchat á spítalanum: Ég verð klár á laugardaginn
Christian Pulisic.
Christian Pulisic.
Mynd: Getty Images
Christian Pulisic, fyrirliði Bandaríkjanna, meiddist í gær þegar liðið fór með sigur af hólmi gegn Íran.

Pulisic skoraði eina mark leiksins gegn Íran og meiddist í leiðinni eftir samstuð við markvörð Írana, sem endaði með takkana á hægri fæti á heilaga svæði Pulisic.

Bandaríkin mæta sterku liði Hollands í 16-liða úrslitum en það var sagt frá því í morgun að óljóst væri hversu lengi hann yrði frá.

Pulisic hefur sjálfur gefið það út að hann muni vera klár fyrir leikinn á móti Hollandi. Hann ætlar ekki að missa af því.

Pulisic sendi Snapchat-skilaboð úr spítalarúmi sínu en þeim skilaboðum hefur verið lekið og dreift víða á samfélagsmiðlum. „Ég er svo stoltur af strákunum mínum! Ég verð klár á laugardaginn, ekki hafa áhyggjur af því," skrifar Pulisic.


Athugasemdir
banner
banner
banner