Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 30. desember 2017 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Atalanta og Torino vilja fá Grenier frítt
Mynd: Getty Images
Clement Grenier, miðjumaður Lyon, verður samningslaus næsta sumar og er mikill áhugi á honum frá Ítalíu.

Grenier er 26 ára gamall miðjumaður sem á 5 A-landsleiki að baki fyrir Frakkland auk rúmlega 50 unglingalandsleikja.

Ítalskir og franskir fjölmiðlar segja að Atalanta og Torino hafi augastað á Grenier, sem þyrfti þó að taka á sig launalækkun.

Lyon er líklegt til að selja leikmanninn í janúar ef það berast tilboð. Bordeaux, Inter og Sporting eru sögð hafa áhuga.

Grenier hefur ekki mikla reynslu úr ítalska boltanum. Hann var lánaður til Roma í janúar en kom aðeins við sögu í sex leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner