Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 30. desember 2017 12:00
Hafliði Breiðfjörð
Uppboð á málverki Tolla á Fótbolta.net
Málverkið hans Tolla sem er boðið upp á Fótbolta.net.
Málverkið hans Tolla sem er boðið upp á Fótbolta.net.
Mynd: Tolli
Fótbolti.net og listamaðurinn Tolli taka höndum saman í desember og bjóða upp málverk eftir Tolla hér á vefnum.

Öll upphæðin mun renna til Samhjálpar að þessu sinni. Við vorum líka með svona upphæð í fyrra, þá rann öll upphæðin, 620 þúsund krónur, til Fjölskylduhjálpar Íslands.

Myndin er af eyðibýli en hana má sjá hér með fréttinni. Hún er í stærðinni 120x120 cm.

Uppboðið er hafið hér á vefnum. Sendið upplýsingar um upphæð og nafn bjóðanda á netfangið [email protected].

Við uppfærum svo fréttina jafnóðum með hæsta boð en nöfn bjóðenda birtast ekki á vefnum. Lokadagur tilboða er laugardaginn 30. desember klukkan 12:00.

Hæsta boð: 682.000,-

Fótbolti.net er þakkláttur fyrir velvild Tolla með þessu samstarfi og mikil ánægja að geta látið gott af okkur leiða í jólamánuðinum.
Athugasemdir
banner
banner