lau 30. desember 2017 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Cavani: Samband mitt við Neymar mjög gott
Cavani og Neymar eru bestu mátar þrátt fyrir erfiða byrjun.
Cavani og Neymar eru bestu mátar þrátt fyrir erfiða byrjun.
Mynd: Getty Images
Edinson Cavani segir samband sitt við Neymar vera mjög gott, en þeir eru samherjar hjá stjörnum prýddu liði PSG í franska boltanum.

Sóknarmennirnir virtust rífast fyrr á tímabilinu um hvor ætti að taka vítaspyrnur, en þeir hafa náð sáttum og er Neymar ný vítaskytta félagsins.

„Samband mitt við Neymar er mjög gott. Við erum atvinnumenn og markmið okkar er að spila vel saman og gera vel fyrir félagið okkar," sagði Cavani í viðtali við Telegraph.

„Við vorum allir ánægðir þegar Neymar skrifaði undir því hann er frábær leikmaður sem myndi lyfta hvaða félagi sem er á næsta stig.

„Það voru aldrei nein illindi milli mín og Neymar, þetta er allt byggt á kjánalegum misskilningi."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner