Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 30. desember 2017 11:30
Kristófer Jónsson
Kompany klár fyrir Crystal Palace leikinn
Mynd: Getty Images
Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City, verður í leikmannahópi liðsins á morgun þegar að þeir heimsækja Crytal Palace á Selhurst Park. Þetta staðfestir Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City.

Kompany þurfti að fara af velli í vikunni þegar að Manchester City vann Newcastle á St. James' Park. Meiðslin eru hins vegar ekki jafn slæm og þau litu út fyrir að vera og ætti hann að vera klár á morgun.

Vincent Kompany er algjör lykilmaður í Manchester City liðinu en hann hefur verið óheppinn með meiðsli á ferli sínum. Hann á að baki 240 deildarleiki með City og hefur skorað í þeim 16 mörk.

Manchester City er á toppi deildarinnar með 58 stig en það er 15 stigum meira en grannar þeirra í Manchester United í öðru sætinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner