lau 30. desember 2017 13:00
Kristófer Jónsson
Matic: Ég myndi spila í marki ef ég yrði beðinn um það
Mynd: Getty Images
Nemanja Matic, leikmaður Manchester United, segist vera til í að spila hvaða stöðu sem er hjá félaginu.

Matic, sem kom til Manchester United frá Chelsea í sumar, var færður í miðvörðinn gegn Burnley í síðustu umferð eftir að Marcos Rojo var tekinn útaf í hálfleik.

„Auðvitað vil ég helst spila á miðjunni en ef að þjálfarinn vill að ég spili í einhverri annari stöðu geri ég það glaður." sagði Matic í viðtali.

„Ef að ég yrði beðinn um að spila í marki myndi ég gera það. Fyrir mér er bara mikilvægast að spila og hjálpa liðinu." sagði Matic að lokum.

Matic verður í eldlínunni með Manchester United klukkan 17:30 þegar að liðið fær Southampton í heimsókn.
Athugasemdir
banner
banner
banner