Derby County 2 - 1 Charlton Athletic
1-0 Jason Knight ('10 )
2-0 Jason Knight ('77 )
2-1 Lyle Taylor ('83 )
Rautt spjald: Krystian Bielik, Derby County ('17)
1-0 Jason Knight ('10 )
2-0 Jason Knight ('77 )
2-1 Lyle Taylor ('83 )
Rautt spjald: Krystian Bielik, Derby County ('17)
Derby County vann Charlton Athletic 2-1 í ensku B-deildinni í kvöld en leikurinn fór fram á Pride Park, heimavelli Derby.
Jason Knight kom Derby yfir með marki á 10. mínútu áður en Krystian Bielik var rekinn af velli sjö mínútum síðar eftir hrottalega tæklingu á Conor Gallagher.
Þrátt fyrir að Derby spilaði með aðeins tíu menn megnið af leiknum þá tókst liðinu að bæta við marki á 77. mínútu. Aftur var það Knight sem skoraði.
Lyle Taylor minnkaði muninn með marki úr vítaspyrnu á 83. mínútu en lengra komst Charlton ekki. Lokatölur 2-1 fyrir Derby sem er í 17. sæti með 30 stig en Charlton er tveimur sætum neðar með 28 stig.
Athugasemdir