Belgíski markvörðurinn Thibaut Courtois segir að hann og Gareth Bale séu fínir mátar
Courtois gagnrýndi Bale fyrr á árinu er velski landsliðsmaðurinn ákvað að sleppa kvöldverð og ákvað í stað þess að fara að sofa.
Bale hefur ekki náð að venjast lífinu í Madríd en flestir leikmenn liðsins borða afar seint á meðan Bale fer snemma að sofa á kvöldin.
Bale hefur fengið mikla gagnrýni undanfarna mánuði og þá sérstaklega eftir að hann dansaði með fána merktum forgangsröðuninni hans en Courtois hefur komið honum til varnar.
Marcelo sagði frá því í viðtali fyrr á árinu að Bale talaði ekki spænsku og væri ekki vel að sér í tungumálinu en Courtois segir það einfaldlega vera rangt.
„Ég á í mjög góðu sambandi við unga leikmenn á borð við Valverde, Brahim Diaz og Sergio Reguilllon. Ég og Casemiro erum líka mjög nánir og ég tala mikið við hann, Isco og Eden Hazard," sagði Courtois.
„Ég er svona manneskja sem er mjög auðvelt að tengjast og tala fjögur tungumál. Ég tala ensku, hollensku, frönsku og spænsku og hef alltaf lært þýsku í skóla, þannig ég tala það aðeins líka. Ég er einnig að læra smá portúgölsku útaf brasilísku liðsfélögunum."
„Ég vil halda í enskuna mína með að tala við Gareth en það sem fólk áttar sig ekki á er að hann talar betri spænsku en fólk gerir sér grein fyrir. Hann gæti svarað viðtali á spænsku og ég tala mikið við hann. Gareth gerir allt til að vinna leiki," sagði hann í lokin.
Athugasemdir